Eins og ég sagði þá er meðgangan hafin. Ég er að lenda á jörðinni eftir PARÍS <3 <3 og SUMAR ENNÞÁ... og ÓDÝRT AÐ VERSLA ... Og núna hefst vinnan; læra -tala -skrifa frönsku, grow up og hætta að vera með heimþrá, og kynnast sem flestum. Ekkert af þessu verður piece of cake, en það er það skemmtilega við það þegar upp er staðið- að ég hafi unnið fyrir þessu :)
Dagarnir hérna verða bara heitari og heitari... Þegar ég fer í skólann á morgnana er skítakuldi en svo þegar skólinn er búinn er maður að bráðna niður því það er svo heitt! Þannig ég kýs heldur að vera kalt í þessar 10 mín sem ég er úti á morgnana heldur en að vera í svitakófi í síðustu tímum dagsins, og klæði mig í létt föt á morgnana.
Ég er búin með 3 vikur í skólanum og það gengur bara ágætlega.. Enskan er ekkert mál fyrir mig, eða það finnst mér ekki, en Enskar bókmenntir -sem ég hélt að væru eitthvað fyrir mig, eru bara alls ekki fyrir mig ! Annað hvort veit ég ekkert hvað kennarinn er að tala um( hugtök sem ég hef aldrei heyrt og allir aðrir þekkja), eða bara ég gleymi að gera heimavinnuna (sem er ólíkt mér og ég bara veit ekki hvað er í gangi). Svo í hinum tímunum skil ég lítið sem ekkert. En í frönsku er ég búin að fá bækur sem eru fyrir 3-6 ára krakka og það er fínt fyrir mig, er að lesa svona orð og læra hvernig á að bera fram stafina, minnir mig á 1.bekk þegar maður var að lesa Sísí og Lóló eða hvað sem það nú hét :) Svo íþróttu er nú ekkert að skilja, bara hlaupa og það næstu vikurnar... Fyrsti tíminn var hell ! Enda ekkert skrýtið, ekki búin að vera í íþróttum af viti síðan síðasta vor og svo ætla að fara að brillera í hlaupi hérna fyrsta tímann, ó neiii... svo gleymdi ég líka að teygja á eftir hlaupið þannig að ég var með verstu harðsperrur sem ég hef fengið næstu daga haha.. En næsti tími var ekkert mál :)
Ég er ekki búin að eignast eh geggjað marga vini en Maria og Rob eru ágætis vinir mínir :)
Sumir dagar eru betri en aðrir hérna ! Eins og 19.09 :) Byrjaði daginn á því að hafa ekkert strætóvesen, í fyrsta skipti, svo fór ég í bæinn og gerði góð fatakaup, chillaði svo á Place Du Wetz D'amain og fékk svo uppáhaaaalds smsið mitt í heimi .. Coldplay í París 14.des - frá pabba... Ekki víst að ég farin reyndar, langar óeeeeeendanlega mikið og búin að fá leyfi en Anne-Charlotte er í prófum akkúrat í þessari viku og hún væri sú sem færi með mér... En hún ætlaði að reyna að finna lausn..
En langaði bara að segja ykkur að þó ég sé með smá heimþrá þá er ég að eiga góða daga hérna :)
En langaði bara að segja ykkur að þó ég sé með smá heimþrá þá er ég að eiga góða daga hérna :)
Síðustu helgi skelltu Dominique, Charles og Anne-Charlotte sér til Mallorca. Þannig ég var hjá Céline í 2 nætur.. Hún var með markað laugardag og sunnudag, og ég var með henni.. Annar markaðurinn var á Cité Natura/Safni náttúrunnar. Það var geggjað ! Allar plöntur heimsins þar liggur við þ.á.m. vínakur - þar mátti maður taka vínberjaklasa að vild nammi! En það var aðeins of geggjað veður fyrir litla Íslendinginn þarna.. Ég held ég hafi fengið minn fyrsta sólsting á sunnudeginum.. Og á laugardagskvöldið smakkaði ég kanínu í fyrsta skipti og það var bara hið besta kjöt !
Ég kom heim til Mondicourt um 18 á sunnudaginn og þá fór Louis heim til Céline þannig ég var ein heima.
Þegar þau komu heim brún og sæt, gáfu þau mér armband og hring með Mallorca perlum - æðiiiislega flott !
Þegar þau komu heim brún og sæt, gáfu þau mér armband og hring með Mallorca perlum - æðiiiislega flott !
Þessi helgi er búin að vera sweet !
Á Föstudaginn var enginn skóli fyrir mig þannig ég svaf bara út, eða þannig. Þessir verkamenn eru að gera mig kreysí, eru mættir klukkan 8 og eru með læti ! En þeir eru ekki um helgar þannig guði sé lof :) Ég hef aldrei gefið mér tíma til að skoða Mondicourt almennilega þannig ég tók smá rölt um bæinn fyrir hádegi. Svei mér þá, ég held að það eina fyrir utan íbúðarhús sé kirkjan ! Um 14 hentist ég út í sundlaug, synti smá og lá svo í sólbaði í 2 tíma <3. Um kvöldið fór ég með Dominique, Charles og Louis út að borða. Fórum á lítinn sætan stað í Doullon, sem er svona 10 mín héðan. Í forrétt fékk ég mér froskalæri, sem voru bara mjög góð, aðalrétt, lamb sem var allt í lagi, en ég held að það sé ekki það besta fyrir stelpu sem hefur alist upp við að fá úrvals lambakjöt úr heimahaga , þannig auðvitað fannst mér þetta síðra en Krosslamb heh :D, svo í eftirrétt fékk ég súkkulaðiköku - djúsí dauðans ! hún var í laginu eins og muffins svo þegar ég tók fyrsta bitann þá lag heitt súkkulaði út úr henni ! ó lord hvað hún var góð .
Í gær Laugardag slakaði ég bara á fyrri hluta dagsins. En um 15 fór ég með Dominique, Céline og Matteó í bæjarferð til Arras. Það var gaman, þó ég keypti mér ekki neitt. Leið eins og ég væri komin á Laugarveginn á góðum sumardegi, hitin fór í yfir 30°C. Helling af fólki í góðu skapi, tónlist í hátölurum allstaðar og svo enduðum við ferðina á því að fá okkur ostaköku í Me and You, þangað fer ég aftur ! Kíktum líka í búðina sem Anne-Charlott vinnur, það er svona barnabúð- ég þangað þegar ég er ólétt ! Matteó kom með okkur heim og við fórum í sundlaugina. Um kvöldið ætlaði ég að kynna þeim fyrir íslenskum húmor og sýna þeim Dalalíf en það var ekki neinn texti þannig það var vonlaust að horfa á það.. Þannig við horfðum bara á Hors du prix, sem þau höfðu reyndar aldrei séð og höfðu gaman af :)
Í dag er bara búin að vera slökun aldarinnar! Fyrir hádegi fór ég með Anne-Charlotte og Charles á æfingu Lauru og Anne-Charlotte, (Laura er hestur). Magnað að sjá hvað hesturinn getur hoppað yfir hátt ! Í hádeginu komu Céline og co. og borðuðu með okkur. Svo voru þau hér þangað til að verða 18. Við láum bara öll í sólbaði og fórum í sundlauguna þegar okkur var of heitt.. ljúft !
Randome punktar
- Allar stelpur eru mjög nákvæmar þegar glósur í tímum varðar, ef að þær gera minnstu vitleysu þá er náð í tippexið, á meðan ég krota bara yfir villuna og skrifa áfram. Svo eru allar línur þráðbeinar því að þær nota reglustiku alltaf þegar þær gera einhverja línu, á meðan ég treysti bara á það að ég sé ekki skjálfhent og krota blátt áfram !
- Hér heilsast strákar með handabandi þegar þeir hittast, og það er svo fyndið að sjá suma því þeir eru með eitthvað þaulæft handaband, eins og í einhverri amerískri High shcool mynd haha...
- Maturinn hér er góóóður, og ég er orðin svo dugleg að prófa, þó að það líti ekki girnilega út. Ég er til dæmis bara farin að borða tómata, hætt að pína þá í mig- mér finnst þeir actually fínir ! Svo verð ég orðin svo góðu vön þegar ég kem heim að ég vil eftirétt á morgnana, hádeginu og kvöldin hehe :D
- Allar stelpur eru mjög nákvæmar þegar glósur í tímum varðar, ef að þær gera minnstu vitleysu þá er náð í tippexið, á meðan ég krota bara yfir villuna og skrifa áfram. Svo eru allar línur þráðbeinar því að þær nota reglustiku alltaf þegar þær gera einhverja línu, á meðan ég treysti bara á það að ég sé ekki skjálfhent og krota blátt áfram !
- Hér heilsast strákar með handabandi þegar þeir hittast, og það er svo fyndið að sjá suma því þeir eru með eitthvað þaulæft handaband, eins og í einhverri amerískri High shcool mynd haha...
- Maturinn hér er góóóður, og ég er orðin svo dugleg að prófa, þó að það líti ekki girnilega út. Ég er til dæmis bara farin að borða tómata, hætt að pína þá í mig- mér finnst þeir actually fínir ! Svo verð ég orðin svo góðu vön þegar ég kem heim að ég vil eftirétt á morgnana, hádeginu og kvöldin hehe :D
Þetta ætti að vera ágætis uppgjör á þessum fyrsta mánuði mínum hér í Frakklandi..
Ég bið að heilsa,
Ég bið að heilsa,
á bientot,
Katla
Katla
No comments:
Post a Comment